Á mbl.is (sjá slóð hér að neðan) segir eftirfarandi um Crohn’s og sáraristilbólgur: Þetta eru bólgusjúkdómar í meltingarvegi, algeng einkenni þeirra beggja eru niðurgangur og verkir í liðamótum, þeir eru ólæknandi og ekki er vitað um orsakir þeirra.
Hvers vegna er mataræðið ekki skoðað. Hvað með að bæta meira af grænu inn í fæðuna (grænkál, spínat, brokolí, lárperur), hvað með að bæta meira af óeldaðri næringu í fæðuna, hvað með að skoða hvort kandídtan er að valda þessum sjúkdómi.
Ég hef ekki annað en orð vinar míns fyrir því að „Ofurblandan gegn krabbameini“ hafi stoppað öll einkenni Crohn’s sjúkdómsins eftir 2 mánaða inntöku, það kostar ekki mikið að reyna það og blönduna býr maður til í eldhúsinu heima hjá sér. Sjá uppskrift hér að neðan.
Hvað með tækni eins og Rife-tíðnitækin, þar sem kröftugum hljóðbylgjum er beitt á snýkjudýrin og óværurnar sem valda bólgunum brotnar niður. Í nýja Rife-tækinu sem við erum að selja á www.rife.is er einmitt tíðni fyrir Crohn’s vandamálið.
Er ekki kominn tími til að hætt verði að láta almenning kveljast bara fyrir þá ástæðu að stoltið leyfir ekki að litið sé út fyrir mikla en takmarkaða þekkingu læknasamfélagsins.
Það að eitthvað sé sagt ólæknandi þýðir bara það að það er ólæknandi með lyfjum vestrænna lækninga eða lausnin ekki kennd í læknadeildum háskólanna. Það er ekki lengur ásættanlegt að fólk þurfi að kveljast í áraraðir, jafnvel ævina alla bara af því að sjúkdómurinn fellur ekki innan þess ramma sem lyfjaframleiðendur hafa fundið leið til að slá á einkenni. Á milli himins og jarðar er svo miklu meira í boði en vestrænar lækningar samþykkja sagði heilbrygðisráðherra Noregs hér fyrir nokkrum árum.
Greinina má finna hér: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/03/10/urfum_ad_geta_raett_thennan_sjukdom/
Ofurblandan gegn krabbameini
4 tsk Turmerik
4 tsk Karry
2 tsk Kanill
1,5 tsk Svartur pipar
2 ltr. Eplasafi
(Í þetta má bæta Cayenne pipar, hvítlauk og engiferrót)
Allt sett í pott og hitað upp að suðu. Þetta er síðan geymt í kæli og tekið inn þrisvar á dag eitt ca. 200ml (vatnsglas) í senn.
Nauðsynlegt er að drekka með þessu “Aloe Vera” safa til að fá sem bestu virknina.